Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Vorfjarnám 1. stig ÍSÍ hefst 11. febrúar.

09.01.2013

Vorfjarnám 1. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 11. febrúar næstkomandi. Námið er öllum opið sem lokið hafa grunnskólaprófi. Um er að ræða 8 vikna nám sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár enda grunnur fyrir áframhaldandi nám í íþróttaþjálfun í hvaða íþróttagrein sem er.

Það er allt tekið í fjarnámi og skila nemendur verkefni vikulega og taka auk þess þrjú krossapróf. Námið samsvarar ÍÞF 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið í báðar áttir. Þátttökugjald er kr. 25.000.- og eru þá öll námsgögn innifalin en þau eru send á heimilisföng þátttakenda. Við skráningu þarf að koma fram fullt nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 til fim. 7. febrúar næstkomandi.

Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ og fyrirkomulag fjarnámsins gefur Viðar Sigurjónsson á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.