Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Thomas Bach kjörinn forseti IOC

10.09.2013

Thomas Bach frá Þýskalandi var í dag kjörinn níundi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar á þingi IOC í Buenos Aires.

Thomas Bach er lögfræðingur að mennt og varð Ólympíumeistari í skylmingum á leikunum 1976 í Montreal auk þess að verða heimsmeistari í liðakeppni 1976 og 1977. 

Hann hefur verið valinn til fjölda trúnaðarstarfa á vegum íþrótthreyfingarinnar, bæði í Þýskalandi, þar sem hann er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Þýskalands, sem og á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar.