Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Erum við á réttri leið? Ráðstefna um íþróttir barna og unglinga

14.04.2015

Föstudaginn 17. apríl stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir ráðstefnu um íþróttir barna og unglinga og verður ráðstefnan haldin í Laugarásbíói, hefst kl.11 og stendur til kl.14:30. Á ráðstefnunni er ætlunin að skoða íþróttaiðkun barna og unglingum frá mörgum sjónarhornum. Fyrirlesarar verða reynslumiklir þjálfarar úr ólíkum greinum íþrótta og aðrir einstaklingar með margvíslega aðkomu að íþróttum barna og unglinga.

17.-18. apríl  fer fram Íþróttaþing þar sem lögð er fram endurskoðuð tillaga um  barna og unglingastefnu ÍSÍ og því tilvalið að veita þessum málaflokki sérstaka athygli. Skráning fer fram á skraning@isi.is og er aðgangur ókeypis. Mikilvægt er að skrá sig og þarf skráningin að hafa borist ekki síðar en miðvikudaginn 15. apríl. Ráðstefnan verður í beinni útsendingu á heimasíðu ÍSÍ. Ráðstefnustjóri verður Anna Guðrún Steinsen. 

Nánari dagskrá má sjá hér