Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

500 dagar til Paralympics í Ríó

27.04.2015Í gær, 26. apríl, voru 500 dagar þar til Paralympics 2016 verða settir við hátíðlega athöfn í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) gerir ráð fyrir að Paralympics 2016 muni ná nýjum hæðum í sjónvarpsáhorfi. Gert er ráð fyrir að rúmlega 4000 íþróttamenn frá um 170 löndum á muni keppa í 22 íþróttagreinum dagana 7.-18. september 2016.
Sir Philip Craven forseti IPC sagði við 500 daga markið að þegar hafi fleiri útsendingaraðilar tryggt sér sjónvarpsréttinn heldur en á sama tíma fyrir Paralympics í London 2012. Paralympics í Rio 2016 verða sögulegir því í fyrsta sinn munu leikarnir fara fram í Suður-Ameríku. Í London 2012 átti Ísland fjóra fulltrúa en þeir voru Jón Margeir Sverrisson, Helgi Sveinsson, Matthildur Ylfa Þorseinsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir. Síðustu leikar höfðu í för með sér ein gullverðlaun þar sem Jón Margeir Sverrisson landaði gulli í 200m skriðsundi sem um leið var nýtt Heimsmet, Evrópumet, Paralympic-met og að sjálfsögðu Íslandsmet.
Þó vissulega hafi margir íslenskir íþróttamenn sett stefnuna á Rio 2016 þá ræðst það ekki fyrr en á vormánuðum 2016 hver endanlegur hópur Íslands í Brasilíu 2016 verður.