Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Aðalfundur GSSE

01.06.2015Aðalfundur Smáþjóðaleikanna (GSSE) var haldinn í Björtuloftum í Hörpu í morgun.
Smáþjóðaleikarnir verða haldnir í San Marínó árið 2017 og voru fulltrúar San Marínó með kynningu á undirbúningi sínum fyrir leikana. Þá verða leikarnir 2019 í Svartfjallalandi og kynntu fulltrúar þaðan helstu mannvirki og aðstöðu. 
Tilnefnt var í tækninefnd Smáþjóðaleika og rætt um ýmis mál er tengjast leikunum. Í lok þessa leika mun forseti Ólympíunefndar San Marínó, Gian Primo Giardi, taka við sem forseti GSSE fram yfir leikana í San Marinó.