Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Konur eru konum bestar - Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2015

13.06.2015Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og sjötta sinn, í dag, laugardaginn 13. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu en gera má ráð fyrir að um 14.000 konur hafi tekið þátt á yfir 80 stöðum út um allt land og á um 16 stöðum í 10 löndum. Í kringum 4.000 konur hlupu í Garðabænum, 1.600 í Mosfellsbæ, 300 á Akureyri og um 500 konur hlupu í Reykjanesbæ.

Að vanda var boðið upp á mismunandi vegalengdir eða allt frá 2 km upp í 10 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman. Það skemmtilega við Kvennahlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri og algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur fari saman í hlaupið. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Hver kona tekur þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að allar konur komi í mark á sínum hraða og með bros á vör.

Að þessu sinni var Sigurlaug Gísladóttir elsti þátttakandinn en hún tók þátt í hlaupinu í Garðabæ. Sigríður er fædd árið 1921 og er því 94 ár gömul. Sígríður fékk grip sem ÍSÍ og Stjarnan gáfu til minningar um Lovísu Einarsdóttir, íþróttakennara og upphafskonu Kvennahlaupsins.

Öldrunarheimili víðsvegar um land hafa boðið sínu heimilisfólki að taka þátt í Kvennahlaupinu í vikunni sem er að líða. Mikil gleði er meðal heimilisfólkis með þetta framtak og mikið er lagt í að virkja alla til þátttöku. Karlmennirnir hafa þá gjarnan tekið á móti konunum og veitt þeim verðlaunapeninga.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar konum fyrir þátttökuna í ár sem og síðustu 25 ár. Einnig þakkar ÍSÍ Sjóvá, aðal samstarfsaðila Kvennahlaupsins, fyrir stuðninginn sem og öðrum samstarfsaðilum; Morgunblaðinu, Ölgerðinni, NIVEA og Merrild.