Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Norræna skólahlaupið sett í dag

04.09.2015

Norræna skólahlaupið var sett í í blíðskaparveðri í Sunnulækjarskóla á Selfossi í morgun kl. 10:30. Hlaupið var mjög vel skipulagt af skólans hálfu og tóku um 600 grunnskólanemendur þátt.

Birgir Edwald, skólastjóri Sunnulækjarskóla, tók á móti Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ og starfsfólki ÍSÍ við skólann. Líney Rut sagði nokkur orð um Norræna skólahlaupið og ræsti síðan hlaupið. Krakkarnir voru greinilega spenntir fyrir viðburðinum og mikil stemmning ríkti við rásmarkið.

Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna, var á staðnum og vakti mikla kátínu. Auk þess að hvetja krakkana áfram í hlaupinu hljóp Blossi sjálfur dágóðan spöl. Fulltrúar frá Mjólkursamsölunni voru á svæðinu og gáfu krökkunum ískalda mjólk í lok hlaupsins.

Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Hlaupið var fyrst haldið árið 1984. Í ár tengist hlaupið Íþróttaviku Evrópu, verkefni sem Evrópuráðið hefur nýlega hrundið af stað.

Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Árlega taka 10.000-12.000 grunnskólanemendur frá um 40 skólum á Íslandi þátt í hlaupinu og hlaupa til samans 30 hringi í kringum landið, en hægt er að velja um þrjár vegalengdir 2,5, 5 og 10 kílómetra.

Verkefnið nýtur stuðnings ÍSÍ, Mjólkursamsölunnar og Evrópuráðsins, og er í samvinnu við Íþróttakennarafélag Íslands.

Fyrir nánari upplýsingar um Norræna skólahlaupið má hafa samband við sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ:
Ragnhildur Skúladóttir
ragnhildur@isi.is
514-4015

Myndir með frétt