Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Skipting ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ 2016

02.02.2016 
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi 28. janúar sl.  tillögur fjármálaráðs ÍSÍ um úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ sbr. hér neðar.  Framlag á fjárlögum 2016 er óbreytt frá árinu 2015, alls 85 milljónir króna.  Á árinu 2015 var stofnað eitt nýtt sérsamband, Hnefaleikasamband Íslands og sérsamböndin orðin því alls 31 talsins.   Áhersla með styrknum er sem fyrr að vinna að því grundvallaráhersluatriði sem sett var í upphafi að hvert sérsamband fengi til framtíðar framlag til að standa undir nauðsynlegri þjónustu við sambandsaðila með rekstri eigin skrifstofu.
Styrkirnir eru  greiddir út í þrennu lagi.  Fyrsta greiðsla 30. mars n.k., önnur greiðsla 30. júlí n.k. og lokagreiðsla 30. nóvember. Lokagreiðslan er háð skilum á fjárhagslegu uppgjöri og greinagerð um nýtingu styrksins.  

Sérsamband        Upphæð
Akstursíþróttasamband Íslands      2.600.000
Badmintonsamband Íslands 3.000.000
Blaksamband Íslands  3.000.000
Borðtennissamband Íslands  2.600.000
Dansíþróttasamband Íslands 3.000.000
Fimleikasamband Íslands          3.000.000
Frjálsíþróttasamband Íslands        3.000.000
Glímusamband Íslands        1.550.000
Golfsamband Íslands 3.500.000
Handknattleikssamband Íslands  3.300.000
Hjólreiðasamband Íslands  2.600.000
Hnefaleikasamband Íslands  1.550.000
Íshokkísamband Íslands         3.000.000
Íþróttasamband fatlaðra         1.550.000
Júdósamband Íslands  2.800.000
Karatesamband Íslands          2.800.000
Keilusamband Íslands     2.600.000
Knattspyrnusamband Íslands     3.500.000
Kraftlyftingasamband Íslands    2.600.000
Körfuknattleikssamband Íslands  3.300.000
Landssamband hestamannafélaga 3.300.000
Lyftingasamband Íslands  1.950.000
Mótorhjóla- og snjósl.samband Íslands  2.600.000
Siglingasamband Íslands       2.600.000
Skautasamband Íslands         2.600.000
Skíðasamband Íslands        3.000.000
Skotíþróttasamband Íslands  2.800.000
Skylmingasamband Íslands  2.600.000
Sundsamband Íslands 3.300.000
Taekwondósamband Íslands 2.800.000
Tennissamband Íslands       2.600.000
Samtals 85.000.000