Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Sumarfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun lokið

30.08.2016

Sumarfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun er nú lokið.  Ríflega 40 nemendur luku námi á 1. eða 2. stigi námsins að þessu sinni.  Nemendur komu frá fjölmörgum íþróttagreinum s.s. handknattleik, körfuknattleik, júdó, sundi, karate, hnefaleikum, frjálsum íþróttum, dansíþróttum, skíðaíþróttum, fimleikum og keilu.  Þjálfararnir sækja svo sérgreinahluta námsins hjá viðkomandi sérsamböndum.  Haustfjarnám ÍSÍ hefst í lok september næstkomandi og verður auglýst á  næstu dögum. 

Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ veitir Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, vidar@isi.is, 514-4000.