Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Lífshlaupið hefst í dag

01.02.2017Í dag, miðvikudaginn 1. febrúar kl: 09:00, verður Lífshlaupið ræst í tíunda sinn í Íþróttahúsi Holtaskóla, við Sunnubraut í Reykjanesbæ.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
• vinnustaðakeppni frá 1. – 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
• framhaldsskólakeppni frá 1. – 14. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
• grunnskólakeppni frá 1. – 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
• einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Til þess að taka þátt í keppninni þarf að skrá sig til leiks á heimasíðu Lífshlaupsins. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag.

Heimasíða verkefnisins er einföld og þægileg í notkun en ný síða var tekin í notukun á síðasta ári. Allt skráningarferlið er orðið mun einfaldara og síðan er aðgengileg í öllum snjalltækjum. Nú er einnig hægt að lesa inn í Lífshlaupið úr bæði Strava og Runkeeper. Þegar búið er að skrá sig inn í kerfið og farið er í að skrá stigin er hægt að ná í færslur úr Strava og Runkeeper.

ÍSÍ hvetur alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á sínum vinnustað eða í sínum skóla.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is, eða í síma: 514-4000. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið lifshlaupid@isi.is.

Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Advania, Rás 2 og MS