Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Forseti ÍSÍ í heimsókn hjá UMSK

04.04.2017

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ ásamt föruneyti heimsótti starfssvæði Ungmennasambands Kjalarnesþings - UMSK, 29. mars síðastliðinn. Fundað var með fulltrúum stjórnar UMSK, fulltrúum íþrótta- og ungmennafélaga innan UMSK og íþróttafulltrúum sveitarfélaganna á starfssvæði UMSK. Fundurinn fór fram í stórglæsilegri íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK kynnti starfsemi UMSK og íþróttafulltrúarnir Sigurður Guðmundsson, Mosfellsbæ, Jón Júlíusson, Kópavogi, Haukur Geirmundsson, Seltjarnarnesi og Kári Jónsson, Garðabæ kynntu uppbyggingu íþróttamannvirkja og framtíðarsýn í sveitarfélögunum. Mikil og blómleg starfsemi er í félögum innan vébanda UMSK en þar er m.a. að finna nokkur af stærstu fjölgreinafélögum landsins. Sveitarfélögin á svæði UMSK eiga hrós skilið fyrir glæsilega uppbyggingu íþróttamannvirkja og góðan stuðning við íþróttastarf. Forseti ÍSÍ ávarpaði fundinn og afhenti formanni UMSK bækur og borðfána ÍSÍ að gjöf. Að lokinni dagskrá var íþróttamiðstöðin skoðuð.

Myndir með frétt