Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Einstakir hjólreiðakappar

10.05.2017

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur í fimmtánda sinn fyrir Hjólað í vinnuna, vinnustaðakeppni um allt land, dagana 3. – 23. maí. Vefsíða Hjólað í vinnuna er hjoladivinnuna.is

Til þess að koma til móts við þá sem vinna sjálfstætt eða eru ekki í vinnu, en mæta þó reglulega í skipulegt starf, var stofnaður „vinnustaðurinn“ Einstakir hjólreiðakappar. Þar geta allir stakir keppendur skráð sig. Einnig geta þeir sem eru á fámennari vinnustað, en lágmarksviðmiðið þrír starfsmenn, skráð sig í Einstaka hjólreiðakappa, valið eða stofnað starfstöð víðsvegar um landið og stofnað svo sitt eigið lið. Dæmi um þetta er opið lið sem var stofnað á Ísafirði og heitir „Allir velkomnir!“.

Vonandi mun þetta verða til þess að enn fleiri taki þátt í verkefninu Hjólað í vinnuna. Allur virkur ferðamáti telst með í keppninni, þ.m.t. hlaup, ganga, línuskautar, hjólabretti og strætó.

Fylgjast má með skemmtilegum aðsendum myndum á #hjólaðívinnuna á Instagram.

Hér má sjá Instagram-síðu Hjólað í vinnuna.

Allir myndasmiðir, sem einnig eru keppendur, eiga möguleika á að vinna flotta hjálma frá Nutcase á Íslandi í myndaleiknum og því rakið dæmi að deila sem flestum myndum.