Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Sumarfjarnám ÍSÍ

18.05.2017

Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 12. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 9. júní. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Skráning fer fram hér.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is