Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Lokadagur Hjólað í vinnuna

23.05.2017Lokadagur Hjólað í vinnuna 2017 er runninn upp og því um að gera fyrir þátttakendur að taka góðan hjólarúnt til og frá vinnu á síðasta ferðadegi keppninnar. Hjólaveðrið hefur verið með besta móti á keppnistímanum og dagurinn í dag er engin undantekning með mildu og hlýju veðri víðast hvar um landið. Því er síðasti möguleiki á góðri lokaskráningu fyrir sitt lið og sinn vinnustað en hámarksfjöldi keppnisdaga sem hægt er að skrá í ár eru 15 dagar. Þó verður hægt að ljúka við að skrá sínar ferðir þar til kl. 13:00 á morgun, en að þeim tíma liðnum lokast á allar skráningar og lokaúrslit verða tekin saman og birt í heild sinni á vefsíðu Hjólað í vinnuna.

Verðlaunaafhending fer fram föstudaginn 26. maí kl.12:10 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Verðlaunahafar eru sérstaklega hvattir til að mæta en allir þátttakendur og áhugafólk um hjólreiðar eru hjartanlega velkomnir að hjóla við og þiggja ljúfenga súpu og nýbakað brauð með.

Til viðbótar við afhendingu verðlauna í öllum flokkum keppninnar verða veittar viðurkenningar fyrir hjólavæna vottun á vinnustöðum á vegum Hjólafærni og Dr. BÆK.

Allir vinningshafar í skráningar-, liðstjóra- og myndaleik verða svo birtir á vefsíðu Hjólað í vinnuna þegar niðurstöður liggja fyrir.