Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Hjólað í vinnuna 2018 formlega hafið

02.05.2018

Hjólað í vinnuna var ræst í 16. sinn í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal.

Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Alma Dagbjört Möller, landlæknir og Frímann Gunnarsson, þáttastjórnandi með meiru fluttu hvatningarávörp áður en þau hjóluðu verkefnið af stað ásamt öðrum gestum. Myndir og myndband frá setningarhátíðinni í morgun má sjá á facebook-síðu Hjólað í vinnuna.

Vefsíðu Hjólað í vinnuna má sjá hér.

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er bent á að hægt er að nota Strava til að halda utan um sínar ferðir og vegalengdir og hlaða upplýsingunum beint inn í skráningarkerfið. Þá er vert að benda á að hjólaðar vegalengdir til og frá vinnu er ekki eingöngu það sem má skrá í keppninni heldur telst allur virkur ferðamáti með, eins og ganga, hlaup, hjólabretti, línuskautar og strætó.

ÍSÍ minnir alla þátttakendur á skráningarleik Hjólað í vinnuna sem og liðstjóraleik, þar sem reiðhjólaverslunin Örninn gefur góða vinninga. Myndaleikur Hjólað í vinnuna er í boði Nutcase á Íslandi. Hér má finna allt um leikina.

Myndir með frétt