Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Ólympíuhlaup ÍSÍ sett í Hraunvallaskóla

06.09.2018

Ólympíuhlaup ÍSÍ 2018 var sett í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði í morgun í fínu veðri. Um 800 nemendur skólans tóku þátt í setningu hlaupsins og gátu valið um að hlaupa 2,5 km, 5 km eða 10 km. Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 var á staðnum að hvetja nemendur áfram og vakti mikla lukku. Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, afhenti Lars Jóhanni Imsland, skólastjóra Hraunvallaskóla, nokkrar gerðir af boltum að gjöf frá ÍSÍ. Fulltrúar Mjólkursamsölunnar voru á svæðinu og gáfu krökkunum ískalda mjólk í lok hlaupsins. 

Norræna skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá árinu 1984 og lengstan hluta þess tíma verið í umsjón ÍSÍ. Á síðustu árum hefur Ísland verið eina þátttöku-þjóðin á Norðurlöndunum og nafn hlaupsins því ekki endurspeglað verkefnið. ÍSÍ hefur því ákveðið að breyta nafni hlaupsins og heitir það nú Ólympíuhlaup ÍSÍ. Verkefnið hefur nú fengið nýtt merki og viðurkenningaskjölin skarta nýju útliti.

Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur verið mjög góð og almenn í gegnum árin en hefur náð nýjum hæðum á undanförnum árum. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er eins og áður leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nemendur geta nú sem áður valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Mjólkursamsalan, MS, hefur frá upphafi styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og mun halda því áfram og samstarfsaðili að þessu verkefni er eins og áður Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.

Hlaupið er styrkt af verkefninu Íþróttavika Evrópu og verða þrír þátttökuskólar sem ljúka hlaupinu fyrir 30. september og skila inn upplýsingum til ÍSÍ dregnir út úr potti. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 30. september geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2018.

ÍSÍ hvetur þá skóla sem eiga eftir að hlaupa að taka þátt.

Skráning fer fram hér á vefsíðu ÍSÍ.

Myndir frá deginum má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.

Myndir með frétt