Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Fellaskóli í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

12.09.2018

Nemendur og starfsfólk Fellaskóla í Fellabæ hlupu samtals 307,5 km í Ólympíuhlaupi ÍSÍ síðastliðinn föstudag. Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur verið mjög góð og almenn í gegnum árin en hefur náð nýjum hæðum á undanförnum árum. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er eins og áður leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nemendur geta nú sem áður valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri. Hlaupið er styrkt af verkefninu Íþróttavika Evrópu og verða þrír þátttökuskólar sem ljúka hlaupinu fyrir 30. september og skila inn upplýsingum til ÍSÍ dregnir út úr potti. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 30. september geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2018.

ÍSÍ hvetur þá skóla sem eiga eftir að hlaupa að taka þátt. Mjólkursamsalan og Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands eru samstarfsaðilar að þessu verkefni.

Skráning fer fram hér á vefsíðu ÍSÍ.