Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Paralympic dagurinn 29. september

14.09.2018

Laugardaginn 29. september næstkomandi heldur Íþróttasamband fatlaðra Paralympic-daginn fjórða árið í röð. Dagurinn er stór og skemmtilegur kynningardagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi og fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal frá kl. 13-16. Það verður enginn annar en fjörkálfurinn Jón Jónsson sem mun stýra deginum og ljóst að það verður líflegt í frjálsíþróttahöllinni þennan daginn!

Á Paralympic-deginum geta gestir kynnt sér starfsemi aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra og prófað hinar ýmsu íþróttir. Atlantsolíu-bíllinn mætir hlaðinn pylsum og gestir geta spreytt sig í hinum ýmsu íþróttum fatlaðra og kynnt sér ítarlega starfsemi aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra sem bjóða upp á fjölbreytt úrval í sinni daglegu starfsemi.

Vefsíða Íþróttasambands fatlaðra.

Facebook síða Íþróttasambands fatlaðra.