Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Síðasti dagur Göngum í skólann í dag

10.10.2018

Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er í dag, 10. október. Þar með líkur verkefninu Göngum í skólann formlega þetta árið.

Það var metþátttaka í verkefninu í ár með alls 75 þátttökuskólum. Það komu frásagnir og myndir frá mörgum skólum inn heimasíðu Göngum í skólann og hefur verið gaman að fylgjast með því hversu fjölbreytt og skemmtilegt starf er í grunnskólum landsins. 

Markmið verkefnisins sem er m.a. að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og um leið fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.  Okkar von er að þetta verkefni sé hvatning fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skóla til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla allt árið um kring.