Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Starfsskýrsluskil í Felix

25.02.2019

Búið er að opna fyrir skil á starfsskýrslum í Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá þurfa allir sambandsaðilar ÍSÍ að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert í gegnum Felix kerfið. Þeir sambandsaðilar sem ekki hafa enn haldið sína aðalfundi, geta sótt um frest til að skila ársreikningshluta skýrslunnar fram yfir aðalfund viðkomandi. Umsókn um frest þarf að senda skriflega á netfangið isi@isi.is, með afriti til viðkomandi íþróttahéraðs.

Leiðbeinandi upplýsingar varðandi starfsskýrsluskil og aðstoð þar að lútandi er að finna í eftirfarandi skjölum:

Bréf ÍSÍ starfsskýrsluskil 2019

Ferli - Hvernig á að ganga frá starfsskýrslu í Felix

Felix 2.0 upplýsingar


Nánari upplýsingar varðandi starfsskýrsluskil veitir Elías Atlason, verkefnastjóri Felix. Netfangið hans er elias@isi.is og sími 514 4000.