Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Hádegisfundur í dag - Svefn og íþróttir

20.03.2019

Hádegisfundur um svefn og íþróttir fer fram í dag, miðvikudaginn 20. mars, frá kl.12:00 - 13:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Rannsóknir á svefni ungmenna á undanförnum árum hafa gefið vísbendingar um að þau séu ekki að sofa nægjanlega mikið. Hvernig standa þá krakkar sem eru að mæta á morgunæfingar hjá íþróttafélögum er kemur að gæðum svefns? Af hverju er svona mikilvægt að ná fullum svefni? Fundurinn er opinn og er haldinn í samstarfi ÍSÍ og deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda innan menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Dr. Erlingur Jóhannesson mun fjalla um mikilvægi svefns og hvað á sér stað í líkamanum á meðan við sofum. Dr. Sigríður Lára Guðmundsdóttir kynnir niðurstöður rannsókna á svefnvenjum ungra íslenskra sundmanna. Hrafnhildur Lúthersdóttir mun svo veita innsýn og reynslu afrekssundkonu á málefnið.

Opið verður fyrir umræður í lokin. Hádegisfundinum verður streymt á facebook síðu ÍSÍ.