Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

24

Minsk 2019 - Keppni á Evrópuleikunum

19.06.2019

Evrópuleikarnir 2019 verða settir föstudagskvöldið 21. júní nk. í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Þann sama dag hefst keppni leikanna og keppir einn Íslendingur strax á fyrsta degi, en Eowyn Marie Alburo Mamalias mun þá keppa í bogfimi, eða í grein sem heitir trissubogi kvenna. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þann dag er keppt um röðun í mótinu og hefst sú keppni kl. 9:45 að staðartíma (6:45 að íslenskum tíma). Daginn eftir, laugardaginn 22. júní hefst útsláttarkeppni í greininni kl. 16:20 að staðartíma (13:20 að íslenskum tíma) og stendur yfir í tæpa þrjá tíma. Miðvikudaginn 26. júní heldur greinin svo áfram fyrir þá sem komast í áttamanna úrslit og er keppt til úrslita sama dag.

Sunnudaginn 23. júní fer fram keppni í skotfimi karla, þ.e. 10m loftbyssu og mun Ásgeir Sigurgeirsson keppa þar fyrir Íslands hönd. Hefst keppnin kl. 9:15 að staðartíma (6:15 á íslenskum tíma) og úrslit fara fram kl. 11:30 sama dag (8:30 á íslenskum tíma). Ásgeir keppti í annarri grein á síðustu Evrópuleikum og komst þá í úrslit þar sem hann lauk keppni í fimmta sæti.

Sama dag mun Sveinbjörn Jun Iura keppa í -81 kg. flokki í júdó. Hefst sú keppni kl. 12:06 að staðartíma (9:06 á íslenskum tíma) og stendur yfir fram eftir degi þar til úrslit ráðast. Ekki liggur fyrir hvaða mótherja Sveinbjörn fær á leikunum, en Sveinbjörn keppti einnig á síðustu leikum og tapaði þar fyrir þýskum andstæðingi í fyrstu umferð.

Mánudaginn 25. júní hefst keppni í badminton þar sem Kári Gunnarsson keppir í einliðaleik. Fyrirkomulagið á leikunum er þannig að keppt er í fjögurra manna riðlum og keppir Kári kl. 22:00 (19:00 á íslenskum tíma) á móti Christian Kirchmayr frá Sviss. Daginn eftir keppir hann á sama tíma á móti Brice Leverdez frá Frakklandi og miðvikudaginn 26. júní á hann leik á móti Luka Milic frá Serbíu, en hefst sá leikur kl. 19:00 (eða 16:00 á íslenskum tíma). Keppni hefst svo áfram með 16 manna úrslitum fimmtudaginn 27. júní, en tveir efstu úr hverjum riðli komast áfram í 16 manna úrslit og svo er keppt á hverjum degi fram að úrslitleik sem fer fram á lokadegi leikanna, sunnudaginn 30. júní.

Miðvikudaginn 26. júní fer fram keppni í haglabyssuskotfimi, þ.e. skeet, þar sem Hákon Þór Svavarsson verður á meðal keppenda líkt og á síðustu leikum. Keppni hefst kl. 09:00 að staðartíma (6:00 á íslenskum tíma) og stendur fram eftir degi. Daginn eftir, fimmtudaginn 27. júní, er seinnidagur keppninnar og hefst hún á sama tíma. Síðar þann dag, eða kl. 18:00 að staðartíma (15:00 á íslenskum tíma) fara fram úrslit í greininni.

Fimmtudaginn 27. júní hefst keppni í áhaldafimleikum og á Ísland þar tvo keppendur, þau Agnesi Suto-Tuuha og Valgarð Reinhardsson. Keppnin hefst kl. 13:00 að staðartíma (10:00 á íslenskum tíma) og stendur yfir fram eftir degi. Laugardaginn 29. júní fara fram úrslit í fjölþraut og sunnudaginn 30. júní fara fram úrslit á einstökum áhöldum. 

Á myndinni með fréttinni má sjá bogfimihópinn, en þau komu í þorpið í gærkvöldi og eru fyrsti íslenski hópurinn til að mæta á svæðið. Í dag er von á keppendum í skotíþróttum og júdó.

Vefsíðu Evrópuleikanna má sjá hér.

Evrópuleikarnir eru einnig á Facebook

#EuropeanGames
#Minsk2019
#BrightYearBrightYou
#InspiringSportInEurope