Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Íþróttavika Evrópu - Hjartadagshlaupið

27.09.2019

Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 28. september nk. en hlaupið er frá Kópavogsvelli kl.10:00. Tími verður mældur í 5 km og 10 km hlaupi. Ókeypis er að taka þátt í hlaupinu.

Hlaupið byrjar inn á Kópavogsvelli, hlaupið er út á Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið eða eftir 5 km og jafnframt við endamark. Þátttakendum verður einnig boðið frítt í Sundlaugar Kópavogs eftir hlaup.

Nánari upplýsingar má nálgast hér.

 

Íþróttavika Evrópu

Frá 23. - 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Vefsíða verkefnisins er www.beactive.is og þar má nálgast nánari upplýsingar um viðburði vikuna 23. - 30. september. Verkefnið er líka að finna á Facebook hér.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hlaut styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu.