Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Opið er fyrir umsóknir um styrki úr Ferðasjóði íþróttafélaga

29.11.2019
 
ÍSÍ vill minna íþrótta- og ungmennafélög á að opið er fyrir umsóknir um styrki úr í Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir ársins 2019 á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót.
Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 13. janúar 2020. 
Ekki verður hægt að taka við umsóknum eftir þann tíma.
Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019. Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar/mars.
Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ, sími: 514 4000 - netfang: halla@isi.is.