Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Einungis nokkrir dagar eftir af Lífshlaupinu

21.02.2020

Lífshlaupið er enn í gangi og um að gera að skrá sína hreyfingu og vera með. Vinnustaðakeppninni líkur á miðnætti þriðjudaginn 25. febrúar nk. Verið dugleg að skrá hreyfinguna ykkar, það er ekki hægt að breyta/bæta við eftir 25. febrúar. Munið að öll hreyfing hjálpar liðinu þó að fólk sé ekki að hreyfa sig á hverjum degi.

Á hverjum virkum degi eru dregnir út heppnir þátttakendur sem hafa skráð sig til keppni og fær viðkomandi glaðning frá einum af styrktaraðilum Lífshlaupsins.

Vefsíða Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.

Nöfn vinningshafa verða lesin upp í þættinum „Morgunverkin“ á Rás2.
Styrktaraðilar Lífshlaupsins í ár eru: MS, World Class, Primal Iceland, Keiluhöllin, Skautahöllin, Klifurhúsið og Ávaxtabíllinn.
Í boði eru gjafabréf í klifur, baðstofu, í keilu, á skauta, klippikort í líkamsrækt, ostakörfur, kókómjólk/Hleðsla og ávaxtabakkar. Aukavinningar frá Krauma og Nivea.

Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. - 25. febrúar.
  • Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

ÍSÍ hvetur alla til að skrá sig til leiks (og hvetja þá sem ekki eru skráði til leiks að gera það) þar sem hægt að skrá hreyfingu aftur í tímann frá upphafi keppninnar. Endilega minnið samstarfsfólkið á að skrá inn alla hreyfinguna sína.