Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Íshokkíveisla á Instagram Story ÍSÍ í dag

29.02.2020

Í dag mun kvennalandslið Íslands í íshokkí taka yfir Instagram Story á Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland. Þær munu sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi landsliðsins er þegar þær taka þátt á stórmóti, en nú fer fram HM í íshokkí á Akureyri, með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Stories. HM lýkur í dag og fer síðasti leikur Íslands fram kl. 17:00.

Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Ástralía, Króatía, Úkraína, Nýja Sjáland og Tyrkland. Ísland hefur nú þegar keppt við Ástralíu, Nýja Sjáland, Tyrkland og Króatíu. Síðasti 

Þeir sem vilja fylgjast með íslensku afreksíþróttafólki æfa, keppa og takast á við hversdagsleikann geta fylgt Instagram síðu ÍSÍ og fengið upplifunina beint í símann.

Landslið kvenna í íshokkí 2020:

Alexandra Hafsteinsdóttir
Anna Sonja Ágústsdóttir
Berglind Rós Leifsdóttir
Birta Júlía Þorbjörnsdóttir
Brynhildur Hjaltested
Elín Darkoh Alexdóttir
Eva María Karvelsdóttir
Flosrún Vaka Jóhannesdóttir
Guðrún Marín Viðarsdóttir
Herborg Rut Geirsdóttir
Hilma Bóel Bergsdóttir
Jónína Margrét Guðbjartsdóttir
Karítas Sif Halldórsdóttir
Kolbrún María Garðarsdóttir
Kristín Ingadóttir
Ragnhildur Kjartansdóttir
Saga Margrét Sigurðardóttir
Sarah Smiley
Sigrún Agatha Árnadóttir
Silvía Rán Björgvinsdóttir
Sunna Björgvinsdóttir
Teresa Regína Snorradóttir

Þjálfarar eru Jón Benedikt Gíslason og Sami Petteri Lehtinen.

Streymi allra leikja má finna hér á Youtube rás Íshokkísambands Íslands.

Myndin með fréttinni er tekin af Elvari Frey Pálssyni.