Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

19.01.2015

HÍ og ÍSÍ efla samstarf á sviði íþrótta

HÍ og ÍSÍ efla samstarf á sviði íþróttaSamvinna um eflingu faglegs umhverfis íþróttahreyfingarinnar og þróunarstarf og rannsóknir á sviði afreksíþrótta og barna- og æskulýðsstarfs og afreks- og rannsóknamiðstöð í íþróttum er meðal áhersluatriða í nýjum samstarfssamningi sem Háskóli Íslands (HÍ) og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hafa gert. Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, undirrituðu samninginn í húsakynnum háskólans 7. janúar síðastliðinn.
Nánar ...
19.01.2015

Skíðafélag Ólafsfjarðar fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Skíðafélag Ólafsfjarðar fyrirmyndarfélag ÍSÍSkíðafélag Ólafsfjarðar fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ sunnudaginn 18. janúar síðastliðinn í skíðaskálanum í Tindaöxl í Ólafsfirði. Þennan dag var viðburðurinn "World Snowday" haldinn hátíðlegur á skíðasvæðum landsins og var skíðasvæði Ólafsfirðinga engin undantekning þar. Margt var um manninn á skíðasvæðinu og kakóið og meðlætið rann ljúft niður að loknum góðum degi. Það var Sigurpáll Þór Gunnarsson formaður félagsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónsson Skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Á myndinni eru þeir Viðar og Sigurpáll.
Nánar ...
14.01.2015

Ráðstefna um afreksíþróttir í tengslum við RIG

Ráðstefna um afreksíþróttir í tengslum við RIGÍþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 15. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101. Margir áhugaverðir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksíþróttir.
Nánar ...
13.01.2015

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun Vorfjarnám hins vinsæla náms ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs hefst í febrúar. 1. stig hefst mánudaginn 9. febrúar og 2. og 3. stig viku síðar eða mánudaginn 16. febrúar. Námið er svokallaður almennur hluti þekkingar íþróttaþjálfara og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Hinn hluta námsins sækja þjálfarar til viðkomandi sérsambanda (-nefnda) ÍSÍ. Nám 1. stigs tekur 8 vikur en nám á 2. og 3. stigi tekur 5 vikur. Allir sem lokið hafa grunnskólaprófi hafa rétt til þátttöku á 1. stigi. Allt námið er fjarnám, það eru engar staðbundnar lotur. Þátttakendur geta því raun verið hvar sem er svo fremi að þeir hafi tölvu og aðgang að nettengingu. Skráning er á namskeid@isi.is og/eða í síma 514-4000 og þarf skráningu að vera lokið síðasta föstudag fyrir upphaf náms. Taka þarf fram fullt nafn, heimilisfang, kennitölu, netfang, símanúmer og að sjálfsögðu á hvaða stig verið er að skrá. Nemendur skila verkefnum í hverri viku námsins og taka auk þess nokkur krossapróf. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og eru þá öll námskeiðsgögn innifalin í verðinu. Þátttökugjald 2. stigs er kr. 23.000.- og 3. stigs kr. 18.000 og nýtast námskeiðsgögnin frá 1. stigi áfram á þeim stigum auk þess sem ný bók um næringarfræði fylgir með á 2. stigi. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt réttindi til frekara náms í íþróttaþjálfun. 1. stig ÍSÍ jafngildir ÍÞF 1024 í framhaldsskólum og er það metið í báðar áttir. Allir þátttakendur sem ljúka námi fá send þjálfaraskírteini því til staðfestingar og inn á það skírteini eiga svo öll námskeið að fara, líka það nám sem sótt er til sérsambanda (-nefnda) ÍSÍ. Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson, Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, í síma 514-4000 eða 460-1467 og á vidar@isi.is.
Nánar ...
12.01.2015

Síðasti dagur umsóknarfrests Ferðasjóðs íþróttafélaga

Á miðnætti í kvöld, 12. janúar 2015, mun frestur til að sækja um styrk í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða innanlands árið 2014 renna út. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Sótt er um styrki í gegnum rafrænt umsóknarkerfi hér á heimasíðu ÍSÍ. Nánari upplýsingar má finna á www.isi.is en einnig er hægt að hringja á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000 eða senda fyrirspurnir á netfangið halla@isi.is.
Nánar ...
09.01.2015

Opnað hefur verið fyrir skil á starfsskýrslum í Felix

Opnað hefur verið fyrir árleg starfskýrsluskil í Felix - félagakerfi íþróttahreyfingarinnar. Samkvæmt 8. grein í lögum ÍSÍ skulu allir sambandsaðilar, íþróttafélög, íþróttahéruð og sérsambönd skila skýrslu inn eigi síðar en 15. apríl.
Nánar ...
07.01.2015

Íþróttahátíð framundan í Reykjavík

Íþróttahátíð framundan í ReykjavíkAlþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir fara fram í áttunda sinn dagana 15.-25.janúar næstkomandi. Það er Íþróttabandalag Reykjavíkur í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík ásamt dyggum samstarfsaðilum sem standa að leikunum.
Nánar ...
06.01.2015

EOC tilnefndi Líneyju Rut

EOC tilnefndi Líneyju RutLíney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ varð þess heiðurs aðnjótandi að Evrópusamband ólympíunefnda (EOC), sem eru álfusamtök ólympíunefnda í Evrópu, tilnefndu hana til IOC 2014 Women and Sport Award, fyrir framúrskarandi starf í þágu íþrótta og sem fyrirmynd stúlkna og kvenna í íþróttahreyfingunni bæði hérlendis sem og á alþjóðavettvangi.
Nánar ...