Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

11.03.2019

Ekki harka af þér höfuðhögg!

Ekki harka af þér höfuðhögg!Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar. Um það eru mörg dæmi í knattspyrnu og fleiri íþróttum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands hafa í samstarfi unnið fræðslumyndbönd tengd þessu mikilvæga viðfangsefni. Annars vegar er um að ræða grafísk myndbönd með mikilvægum upplýsingum, m.a. um fyrstu viðbrögð, og hins vegar viðtalsmyndbönd þar sem knattspyrnufólkið Heiðrún Sara Guðmundsdóttir og Elfar Árni Aðalsteinsson deila reynslusögum (Viðtalsmyndböndin má sjá á samfélagsmiðlum KSÍ, t.d. hér). Fyrstu myndböndin hafa þegar verið birt á samfélagsmiðlum ÍSÍ og KSÍ.
Nánar ...
08.03.2019

Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar

Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar97. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) var haldið miðvikudaginn 6. mars í Brautartungu í Lundareykjardal. Ungmennafélagið Dagrenning sá um framkvæmd þingsins og tók vel á móti þingfulltrúum með góðum veitingum. Dagskrá þingsins var hefðbundin og í samræmi við lög sambandsins. Góðir gestir komu á þingið og ávörpuðu fundarmenn. Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri, kom fyrir hönd Borgarbyggðar, Hafsteinn Pálsson fyrir ÍSÍ og Guðmundur Sigurbersson fyrir UMFÍ. Guðmundur heiðraði nokkra sjálfboðaliða UMSB fyrir hönd UMFÍ.
Nánar ...
08.03.2019

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dagAlþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars, og hafa fjöldagöngur verið boðaðar víða um heim af því tilefni. Lesa má meira um daginn á vefsíðu Kvennasögusafns Íslands hér.
Nánar ...
08.03.2019

PyeongChang 2018 - Sögur keppenda

PyeongChang 2018 - Sögur keppendaVetrarólympíuleikarnir fóru fram í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018 og því rúmt ár frá því leikarnir voru settir. Fulltrúar Íslands á leikunum voru Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason í alpagreinum, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen í skíðagöngu.
Nánar ...
07.03.2019

100 dagar í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

100 dagar í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn þann 15. júní 2019. Fyrsta Kvennahlaupið var haldið 30. júní árið 1990 í Garðabæ og var það haldið í tengslum við íþróttahátíð ÍSÍ en segja má að viðburðurinn sé fyrir löngu orðinn ómissandi hjá konum á öllum aldri. Það sem gerir hlaupið líka svo sérstakt, að þetta er ekki einn viðburður á einum stað heldur er hlaupið á meira en 80 stöðum um allt land sem og erlendis.
Nánar ...
06.03.2019

Afrekssjóður ÍSÍ styrkir Karatesamband Íslands

Afrekssjóður ÍSÍ styrkir Karatesamband ÍslandsGengið hefur verið frá samningi Karatesambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins 2019. Karatesamband Íslands (KAÍ) flokkast sem B/Alþjóðlegt sérsamband samkvæmt flokkun Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2019. Styrkveiting sjóðsins til KAÍ vegna verkefna ársins er 6,7 m.kr. en til samanburðar hlutu verkefni KAÍ árið 2018 styrk að upphæð 5.350.000 kr.
Nánar ...
06.03.2019

Ólympíulið flóttafólks

Ólympíulið flóttafólksNæstu Ólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Á leikunum munu 11.000 íþróttamenn keppa í 33 íþróttagreinum. Fimm íþróttagreinum hefur verið bætt við keppnisdagskrána frá síðustu leikum sem fóru fram í Ríó í Brasilíu 2016, en það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun. Sjá má íþróttagreinarnar sem keppt verður í hér og dagskrá leikanna má sjá hér.
Nánar ...
06.03.2019

Hetjur Ólympíuleika í þáttaröð á Ólympíustöðinni

Hetjur Ólympíuleika í þáttaröð á Ólympíustöðinni Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum og býður upp á þáttaraðir tileinkaða íþróttum og íþróttafólki allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttafólk og þeirra leið að meiri árangri. Árið 2017 hóf Ólympíustöðin göngu þáttanna „Goðsagnir lifa“ (Legends Live On), en í fyrstu þáttaröðinni var fjallað um hetjur Ólympíuleika eins og fimleikakonuna Nadia Comaneci, sundmanninn Ian Thorpe og snjóbrettakappann Shaun White. Nú hefur ný þáttaröð litið dagsins ljós þar sem fylgjast má með hetjum Ólympíuleikanna eftir íþróttaferilinn og á nýjum starfsvettvangi. Fyrsti þáttur, sem kom út í lok febrúar sl., fjallar um franska skíðakappann og gullverðlaunahafa á Ólympíuleikunum í Albertville árið 1992 Edgar Grospiron en hann starfar nú sem fyrirlesari. Fjallað er um hvernig hann notar nú reynslu sína úr íþróttaheiminum til þess að hvetja ungt íþróttafólk áfram. Skilaboð hans eru skýr: „Það sem ég vil segja er mjög einfalt, þetta snýst allt um áhuga og innri hvöt.“
Nánar ...
05.03.2019

Ársþing Glímusambands Íslands

Ársþing Glímusambands ÍslandsÁrsþing Glímusambands Íslands (GLÍ) fór fram laugardaginn 2. mars sl. Þingið gekk vel fyrir sig og meðal þess sem var rætt um var staða glímunnar og hugmyndir um hvernig hægt er að bæta hana með t.d. keppni á dýnum í fullorðinsflokki. Þinggerðina má sjá hér.
Nánar ...
05.03.2019

Ársþing Kraftlyftingasambands Íslands

Ársþing Kraftlyftingasambands ÍslandsÁrsþing Kraftlyftingasambands Íslands var haldið 23. febrúar síðastliðinn í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Góð mæting var á þingið sem var stýrt af Valdimar Leó Friðrikssyni formanni UMSK og Sigurjóni Péturssyni fyrrverandi formanni Kraftlyftingasambandsins. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sem verið hefur formaður sambandsins síðastliðin tvö ár, gaf ekki áfram kost á sér og var Gry Ek Gunnarsson kjörin nýr formaður sambandsins til eins árs. Auðunn Jónsson, Inga María Henningsdóttir og Þórunn Lilja Vilbergsdóttir voru kjörin í stjórn til tveggja ára. Á þinginu voru samþykkt ný heildarlög fyrir sambandið. Hægt er nálgast þinggerð og reikninga hér á vefsíðu sambandsins.
Nánar ...
01.03.2019

Evrópuleikar 2019 - Minsk

Evrópuleikar 2019 - MinskEvrópuleikarnir 2019 fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC).
Nánar ...
28.02.2019

Gísli og Úlfur sæmdir Gullmerki ÍSÍ

Gísli og Úlfur sæmdir Gullmerki ÍSÍ Þing Siglingasambands Íslands (SÍL) var haldið laugardaginn 23. febrúar sl. í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Þingforseti var Guðrún Inga Sivertsen og stjórnaði hún þinginu af mikilli röggsemi. Garðar Svansson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu. Hann flutti kveðju forseta, framkvæmdastjórnar og starfsfólks ÍSÍ og fór yfir helstu verkefni sem framundan eru hjá ÍSÍ. Við flutning skýrslu stjórnar kom fram að sambandið hafi sett mikið starf og fjármagn í fræðslu, þjálfun og keppni á starfsárinu.
Nánar ...