Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

24

20.05.2015

Verðlaunapeningar Smáþjóðaleikanna 2015

Verðlaunapeningar Smáþjóðaleikanna 2015Á dögunum afhjúpaði Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, verðlaunapeninga Smáþjóðaleikanna 2015. Verðlaunapeningar Smáþjóðaleikanna 2015 eru í formi merkis Smáþjóðaleikanna og eru gull, silfur og brons. Formin eru hörð og óregluleg eins og lagskipting náttúrunnar. Verðlaunapeningarnir eru veglegir og stílhreinir. Hver íþrótt hefur sinn einkennislit og því eru borðar verðlaunapeninganna í mismunandi litum.
Nánar ...
18.05.2015

Íslenskir þátttakendur hittast

Íslenskir þátttakendur hittastÁ föstudaginn s.l. var fyrsti fundur íslenskra þátttakenda á Smáþjóðaleikunum. Leikarnir verða settir þann 1. júní og standa yfir til loka dags 6. júní n.k.
Nánar ...
17.05.2015

Guðný erndurkjörin í embætti formanns UÍF

Guðný erndurkjörin í embætti formanns UÍFÁrsþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar fór fram í vallarhúsinu í Ólafsfirði miðvikudaginn 13. maí sl. Lögð var fram árskýrsla og ársreikningar. Í ársskýrslunni er farið yfir verkefni síðasta árs og má segja að starfið hafi verið nokkuð blómlegt. Tap var á rekstri UÍF á síðasta ári upp á rúmar 6.2 milljónir og eru helsta ástæða þess þær endurbætur sem UÍF þurfti að fara í að Hóli eftir brunann sem þar varð í október 2013.
Nánar ...
14.05.2015

Nýr framkvæmdastjóri HHF kynntur á ársþingi sambandsins

Nýr framkvæmdastjóri HHF kynntur á ársþingi sambandsinsHéraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka var haldið á veitingastaðnum Hópinu á Tálknafirði þann 29.apríl síðastliðinn. Vel var mætt á þingið og voru ýmis mál tekin fyrir. Mótaskrá sumarsins var samþykkt auk þess sem valdir voru íþróttamenn ársins 2014 hjá sambandinu. Nýr íþróttafulltrúi var kynntur til starfa en hann mun starfa fyrir Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp auk þess að vera framkvæmdarstjóri HHF.
Nánar ...
14.05.2015

Forseti og framkvæmdastjóri ÍSÍ heiðruð á ársþingi ÍF

Forseti og framkvæmdastjóri ÍSÍ heiðruð á ársþingi ÍFSambandsþing Íþróttasambands fatlaðra fór fram laugardaginn 25. apríl síðastliðinn á Radisson Blu Hóteli Sögu í Reykjavík. Við þingsetningu var Ólafur Þór Jónsson gerður að heiðursfélaga Íþróttasambands fatlaðra og honum einnig veitt æðsta heiðursmerki sambandsins. Ólafur Þór hefur setið í stjórn Íþróttasambands fatlaðra allt frá stofnun árið 1979 en gaf ekki kost á sér til endurkjörs að þessu sinni.
Nánar ...
13.05.2015

Námskeið í Ólympíu í Grikklandi

Námskeið í Ólympíu í GrikklandiÁ næstu dögum hefst tveggja vikna námskeið um Ólympíuhreyfinguna í Ólympíu í Grikklandi og er þema námskeiðsins, Ólympíuhreyfingin, endurnýjun og aðlögun. Þátttakendur frá Íslandi eru tveir þau Anna Margrét Guðmundsdóttir og Jakob Jóhann Sveinsson og voru þau valin úr nokkrum fjölda umsókna.
Nánar ...
12.05.2015

20 dagar til leika

20 dagar til leikaÍ dag eru 20 dagar til Smáþjóðaleika. Að því tilefni var kynningarmyndband leikanna kynnt til sögunnar.
Nánar ...
12.05.2015

Skíðaþing á Egilsstöðum

Skíðaþing á Egilsstöðum68. Skíðaþing Skíðasambands Íslands var haldið í Menntaskólanum á Egilsstöðum laugardaginn 9. maí síðastliðinn. Fjöldi tillagna lá fyrir þinginu m.a. þó nokkrar lagabreytingartillögur.
Nánar ...
11.05.2015

Óbreytt skipan embættismanna framkvæmdastjórnar ÍSÍ

Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ 6. maí síðastliðinn var skipaði í embætti framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Samþykkt var samhjóða að skipa Helgu Steinunni Guðmundsdóttur í embætti varaforseta, Gunnar Bragason í embætti gjaldkera stjórnar og Sigríði Jónsdóttur í embætti ritara stjórnar.
Nánar ...
11.05.2015

Ólafur E. Rafnsson sæmdur Heiðurskrossi KKÍ

Ólafur E. Rafnsson sæmdur Heiðurskrossi KKÍÓlafur E. Rafnsson, fyrrverandi forseti ÍSÍ, var sæmdur Heiðurskrossi Körfuknattleikssambands Íslands á ársþingi sambandsins um síðastliðna helgi. Ólafur, sem lést um aldur fram árið 2013 aðeins fimmtugur að aldri, var forseti FIBA Europe og forseti ÍSÍ er hann lést. Hann var formaður KKÍ í áratug, frá 1996-2006.
Nánar ...
11.05.2015

Hannes áfram formaður KKÍ

Hannes áfram formaður KKÍViðburðarríku Körfuknattleiksþingi lauk á laugardag. Þingið hófst á föstudag með nefndarstörfum og lauk með atkvæðagreiðslu. Hannes S. Jónsson var endurkjörinn formaður KKÍ til næstu tveggja ára en hann var sjálfkjörinn. Allir sitjandi stjórnarmenn KKÍ gáfu kost á sér og þar sem engin fleiri framboð komu var sjálfkjörið í stjórnina.
Nánar ...