Alþjóða lyfjareglurnar
Tilgangur Alþjóða lyfjareglnanna er að vernda grundvallarrétt íþróttamanna til að taka þátt í lyfjalausum íþróttum og stuðla þannig að heilbrigði, sanngirni og jafnrétti fyrir íþróttamenn um allan heim. Auk þess að tryggja samræmdar, samstilltar og skilvirkar áætlanir gegn lyfjanotkun á alþjóðavísu og landsvísu hvað varðar greiningu, hömlur og forvarnir.
Lyfjareglurnar eru grundvallarskjalið sem alþjóða lyfjaeftirlitið í íþróttum byggir á. Alþjóða lyfjareglunum fylgja alþjóðleg viðmið um lyfjapróf og undanþágur vegna lækninga.
Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) heldur utan um hinn opinbera texta lyfjareglnanna. Í ágreiningsmálum skal frumtextinn (á ensku) gilda.