Næstu leikar
27.7.2012
00:00
- 12.8.2012
23:00
London 2012
Ólympíuleikar
29.8.2012
00:00
- 9.9.2012
23:00
London 2012
Ólympíumót fatlaðra
16.2.2013
20:00
- 23.2.2013
23:00
Brasov 2013
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
7.2.2014
00:00
- 7.2.2014
23:00
Sochi 2014
Vetrarólympíuleikar
28.2.2015
20:00
- 7.3.2015
23:00
Vorarlberg/Liechtenstein 2015
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
 
Ólympíuleikar ungmenna
Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 14 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðina. Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001. Á 119 þingi Alþjóða Ólympíunefndarinnar árið 2007,sem haldið var í Guatemala, var ákveðið að koma á fót Ólympíuleikum ungmenna.

Sumarleikarnir standa yfir að hámarki í 12 daga. Hámarksfjöldi þátttakenda á leikunum verður 3500 íþróttamenn og 875 dómarar Fyrstu sumarleikarnir fóru fram í ágúst 2010 í Singapore. Vetrarleikarnir standa yfir að hámarki í 9 daga. Hámarksfjöldi þátttakenda á leikunum verður 970 íþróttamenn og 580 dómarar Fyrstu vetrarleikarnir fara fram í janúar 2012 í Innsbruck í Austurríki.