Flýtileiðir
Næstu leikar
Ólympíuleikar
Ísland
tók fyrst þátt á Ólympíuleikunum í London 1908 og svo aftur í
Stokkhólmi 1912. Árið 1920 tók einn Íslendingur þátt en keppti
fyrir Danmörk þar sem hann stundaði nám.
Ísland tók ekki þátt í Ólympíuleikum 1924, 1928 og 1932 vegna slæms efnahagsástands. Síðan 1936 hafa Íslendingar tekið þátt í öllum leikum nema vetrarleikunum í Sapparo í Japan 1972.
Fjórum sinnum hafa Íslendingar staðið á verðlaunapalli á Ólympíuleikum. Fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum var Vilhjálmur Einarsson silfurverðlaunahafi í þrístökki í Melbourne árið 1956. Á leikunum í Los Angeles árið 1984 vann Bjarni Friðriksson bronsverðlaun í -95kg. flokki í judo. Fyrsta íslenska konan til að vinna til verðlauna var Vala Flosadóttir. Vala hlaut bronsverðlaun í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney 2000. Ísland hlaut síðan silfurverðlaun í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.