Næstu leikar
27.7.2012
00:00
- 12.8.2012
23:00
London 2012
Ólympíuleikar
29.8.2012
00:00
- 9.9.2012
23:00
London 2012
Ólympíumót fatlaðra
16.2.2013
20:00
- 23.2.2013
23:00
Brasov 2013
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
7.2.2014
00:00
- 7.2.2014
23:00
Sochi 2014
Vetrarólympíuleikar
28.2.2015
20:00
- 7.3.2015
23:00
Vorarlberg/Liechtenstein 2015
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
 
Bjarni Friðriksson
Bjarni Ásgeir Friðriksson (1956) er án efa þekktasti júdómaður þjóðarinnar og einn mesti afreksmaður íslenskra íþrótta.  Bjarni keppti á fjórum Ólympíuleikum, Moskvu 1980, Los Angeles 1984, Seoul 1988 og Barcelona 1992.

Á leikunum 1984, þann 9. ágúst, keppti Bjarni í -95 kg. flokki.  Keppendur á leikunum voru 24.  Bjarni sat yfir í fyrstu umferð en keppti svo við Danann Carsten Jensen í annarri umferð sem hann sigraði á ippon (fullnaðarsigur).  Í þriðju umferð mætti Bjarni Bandaríkjamanninum Leo White sem hann sigraði og komst hann þar með í undanúrslit.  Þar mætti hann Douglas Vieira frá Brasilíu sem hann tapaði fyrir og átti þá eingönu eftir glímuna um bronsið.  Þar mætti hann Ítalanum Yuri Fazi sem hann sigraði með glæsilegu kasti og armlás í kjölfarið.
(Heimild: Íslendingar á Ólympíuleikum eftir Gísla Halldórsson).