Flýtileiðir
Næstu leikar
Vala Flosadóttir
Vala
Flosadóttir er fædd og uppalin á Bíldudal. Á táningsaldri flutti
hún út til Svíþjóðar þar sem hún stundaði stangarstökk, hér heima
keppti Vala fyrir ÍR. Vala náði frábærum árangri í grein sinni.
Meðal hennar helstu afreka má nefna að á árunum 1995-1997 setti hún
fimm heimsmet unglinga. Árið 1998 setti hún tvisvar sinnum heimsmet
innanhúss í kvennaflokki. Meðal helstu titla má nefna að Vala varð
Evrópumeistari unglinga 1999 og fullorðinna innanhúss árið 1996.
Bestum árangri náði Vala á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000, þá
tryggði hún sér bronsverðlaun með 4,50 m stökki. Vala var kosin
íþróttamaður ársins árið 2000.




