Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands, sem er æðsti aðili frjálsar íþróttastarfsemi
í landinu, hefur á undanförnum árum breytt mikið áherslum sínum
varðandi íþróttastarf. Sambandið hefur í síauknum mæli lagt áherslu á
málaflokka tengdum heilsu og fræðslu, t.d. með átökum í barna- og
unglingaíþróttum og almennu fræðslustarfi um gildi hreyfingar. Eitt af
nýjum áhersluatriðum íþróttahreyfingarinnar eru íþróttir á vinnustöðum.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er aðili að EFCS (European
Federation for company Sport) og er í samstarfi við önnur
íþróttasambönd sem sinna íþróttum á vinnustöðum á Norðurlöndum.
Hér
til hliðar er hægt að kynna sér starfsemi þeirra sambanda sem ÍSÍ er í
samstarfi við og upplýsingar um nokkra fyrirtækjaleika sem haldnir
eru í Evrópu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur staðið fyrir
vinnustaðakeppninni “Hjólað í vinnuna” frá árinu 2003. Landsmenn hafa tekið hvatningar- og átaksverkefninu “Hjólað í vinnuna”
gríðarlega vel þar sem þátttakan hefur aukist gríðarlega. Hjólað í vinnuna mun fara fram dagana 4. - 24.
maí 2011, nánari upplýsingar má finna á www.hjoladivinnuna.is. Lífshlaupið hóf göngu sína árið 2008. Í Lífshlaupinu er hægt að taka þátt í vinnustaðakeppni, hvatningarleik fyrir grunnskólann og einstaklingskeppni sem er í gangi allt árið. Markmiðið er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig í a.m.k. 30 min á dag og má skrá hvaða hreyfingu sem er. Nánari upplýsingar um Lífshlaupið má finna á www.lifshlaupid.is.