Fyrirtækjaleikar

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um leika sem hægt er að skrá sig á.

European Company Sport Games í Falun í Svíþjóð 1. - 5. febrúar 2012.

Er þetta í 12. sinn sem vetrarleikarnir eru haldnir og eru þeir skiplagðir á vegum Korpen, sænska sambandsins um íþróttir í fyrirtækjum og Falun Borlange AB, sem sér einnig um skipulagningu á sænsku fyrirtækja vetrarleikunum sem verða haldnir á sama tíma. Búist er við um 500 keppendum víðsvegar frá Evrópu. Leikarnir verða haldnir á Lugnet íþróttasvæðinu þar sem heimsmeistaramótið á skíðum hefur verið haldið þrisvar sinnum. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að kynna sér leikana nánar inná heimasíðu þeirra eða með því að skoða fréttabréf nr:1 og fréttabréf nr:2.

Hægt verður að skrá sig til leiks 1. október 2011. Þátttökugjaldið er 700 sænskar krónur og innifalið í því er keppnisgjald fyrir eina íþrótt og opnunarhátíð.

Keppt verður í 10 íþróttagreinum: Svigskíðum, gönguskíðum, íshokký, skautum, krullu, bandý, íshokký, blaki, keilu og fótbolta.

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum:

        Flokkur A,16 - 29 ára

        Flokkur B, 30 - 39 ára

        Flokkur C, 40 - 49 ára

 Flokkur D, 50 - 59 ára

Flokkur E, 60 ára og eldri

Flokkur F, 35 ára og eldri

Flokkur G, opinn flokkur

 Keppt er í eftirfarandi greinum:

Svigskíði – Risasvig, svig og liðakeppni í risasvigi, keppt í flokkum A - E

Gönguskíði – 5 km og 10 km í kvennaflokki og 10 km og 20 km í karlaflokki. Boðganga kvenna 3x5 km í flokkum F og G. Boðganga karla 3x10 km í flokkum F og G. Einnig er keppt í maraþongöngu.

Bandý – Karla og kvenna í flokkum F og G.

Íshokký – Flokkum F og G.

Skautum – 10 km og 30/60 km í flokki A - E og í 4x5 km boðhlaupi, blönduð lið.

Krullu – Karla- og kvennaflokki og blönuðum liðum.

Knattspyrna – 5 manna bolta, blönduð lið í flokkum F og G.

Keilu – Liðakeppni, fjórir í liði.

Blak – Liðakeppni karla og kvenna og blönduð lið.

Rinkbandy – er sambærilegt og íshokký nema að spilað er með bolta, styttri kylfur og leikmenn eru ekki eins vel varðir og í íshokký, minna leyft.

Upplýsingar um gistingu og skráningu er að finna hér.

Nánari upplýsingar um leikana gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma 514-4000 eða á jona@isi.is