Flýtileiðir
Hreyfing og heilbrigði - Akureyri 2007
Um fimmtíu manns sóttu fræðslufund fyrir fólk á besta aldri semÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands hélt í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar og Félag aldraðra á Akureyri föstudaginn 26. október 2007. Bæjarstjóri Akureyrar, Sigrún Björk Jakobsdóttir og Hermann Sigtryggsson formaður nefndar um íþróttir aldraðra hjá ÍSÍ ávörpuðu fundinn. Aðrir fyrirlesarar voru Ella Kolbrún Kristinsdóttir dósent, Álfrún Kristín Sigurðardóttir dósent, Bjarni Guðleifsson prófessor og Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur. Í lok dagskrár var öllum þátttakendum boðið í stafgöngukynningu.
Hér fyrir neðan má sjá hluta af þeim fyrirlestrum sem fluttir voru á fræðslufundinum.
Næring og mataræði (Fríða Rún)
Hreyfing fram á efri ár (Bjarni Guðleifsson)