Svefn

Svefn ásamt vatni, lofti og næringu er forsenda heilbrigði. Mikilvægi hans kemur greinilega í ljós við svefnskort. Svefnskortur veldur þreytu, sífelld þreyta veldur streitu. Saman valda þreyta og streita meiri spennu sem hefur lamandi áhrif á ónæmiskerfið sem veldur því að við erum verr varin fyrir nær öllum sjúkdómum.

Um það bil þriðjungi mannsævinnar er varið í svefn. Flestir þurfa sjö til níu stunda svefn til að fá fulla endurnærandi hvíld. Góður svefn er forsenda vellíðunar. Ekki einungis magn svefnsins, hve lengi við sofum, heldur einnig gæði svefnsins, hversu vel við sofum, eru skilyrði góðs svefns.

Oft duga almenn heilræði við svefnleysi eins og slökun eða að fara
 í rúmið vel fyrir miðnætti, fara í heit bað eða fara í gönguferð undir kvöldið.
 
Flestar rannsóknir bend til þess að líkamsþjálfun bætir svefn. Þeir sem eiga við svefnerfiðleika að stríða ættu að velja hreyfingu sem lausn áður en önnur úrræði eru notuð.

Mikilvægt er að hver og einn finni sér hreyfingu við hæfi þar sem rannsóknir sýna og sanna að hreyfing hefur margvísleg heilsubætandi áhrif (sjá hnappinn hreyfiráðleggingar hér til hliðar).