Á undan förnum árum hefur ÍSÍ gefið
út fræðslu- og upplýsingabæklinga sem hefur verið dreift
ókeypis um land allt. Efni þessara bæklinga er nú hægt að nálgast
hér á heimasíðunni.
Bæklingarnir eru gefnir út sem hvatning til fólks um að stunda
reglulega líkamsrækt. Þar er að finna ýmsan fróðleik og
leiðbeiningar um almenningsíþróttir t.d. hvernig á að byrja að
stunda viðkomandi íþrótt, tillögur að æfingum og dæmi um teygjur. Í
bæklingunum er að finna margar mjög góðar myndir.
Nýverið hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands endurútgefið bæklinginn Líkamsæfingar fyrir fólk á besta aldri. í bæklingnum eru sýndar fjölbreyttar æfingar sem henta vel og allir geta stundað daglega. Meðal æfinga eru ganga, æfingar í vatni, æfingar fyrir háls og herðar, bak og kvið, fætur og arma. Hver æfing er sýnd með góðum ljósmyndum. Fróðleikur um gildi líkamsræktar fyrir heilsuna er settur fram og sömuleiðis holl ráð um næringu, svefn, slökun, vernd gegn beinþynningu og fleira. Tveimur síðum hefur verið bætt við bæklinginn en á þeim er farið yfir hvernig stunda á stafgöngu annarsvegar og tækjaþjálfun hinsvegar. Hægt er að nálgæst bæklinginn á rafrænu formi með því að semlla hér.
Þeir sem hafa
áhuga á því að nálgast eintak af bæklingum geta komið á skrifstofu
ÍSÍ, Engjavegi 6 og fengið eintak af bæklingum endurgjaldslaust.
Einnig er hægt að panta í síma 514-4000 og fá bæklinginn sendan
gegn því að greiða póstburðargjaldið.
Alla fræðslubæklinga ÍSÍ er
hægt að nálgast með því að smella hér.