Líkamsrækt

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sendi erindi til bæjar-og sveitarfélaga, þar sem beðið var um upplýsingar um þá aðila sem sinna íþróttastarfi og hreyfingu eldri borgara í viðkomandi sveitarfélagi.

Mörg sveitarfélög hafa nú þegar svarað bréfi okkar og sent okkur gagnlegar og fróðlegar upplýsingar. Kunnum við þessum aðilum bestu þakkir fyrir. Það er mjög ánægjulegt að sjá að víða er mjög fjölbreytt dagskrá þar sem eldri borgarar hafa tækifæri til að velja sér þá hreyfingu sem hentar. Á flestum stöðum eru  íþróttakennarar, sjúkraþjálfarar eða hjúkrunarfólk sem leiðbeina. Hér til hliðar má sjá yfirlit yfir nokkur þeirra námskeiða sem eru í boði.
Við hvetjum þá sem bjóða upp á íþróttastarf fyrir eldri borgara að senda okkur upplýsingar. Með þessu vonumst við til þess að skapa vettvang fyrir aukið upplýsingaflæði fyrir eldri borgara og aðstandendur þeirra um þennan málaflokk.

Vinsamlegast sendið upplýsingar á jona@isisport.iseða hafið samband við Jónu Hildi á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000. Einnig er hægt að hafa samband og fá nánari upplýsingar hjá þeim aðilum sem eru tilgreindir hér fyrir neðan á hverju svæði fyrir sig.