Reykjavík
Sundleikfimi í sundlaugum ÍTR, leikfimi í Víkinni og
Laugardalshöll. Púttvellir eru staðsettir á 10 stöðum m.a. við
öldrunarstofnanir.
70 ára og eldri fá frítt í þessa þjónustu auk þess er frítt á öll
skíðasvæði borgarinnar.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa ÍTR.
Á Dalbraut 14 er boðið upp á leikfimi, boccia og göngu á vegum
Auðar Jónsdóttur íþróttakennara.
Trimmklúbburinn Edda býður upp á vatnsleikfimi í Grensáslaug, jóga
og gönguklúbb.
Mosfellsbær
Pútt, línudans, leikfimi og jóga er kennt í
þjónustumiðstöðinni að Hlaðhömrum. Á laugardögum er farið í göngu
og boðið upp á vatnsleikfimi á vegum Rauða kross deildar
Kjósarsýslu.
67 ára og eldri fá frítt í sund.
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Þorkelsdóttir forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara.
Álftanes
FEBÁ félag eldri borgara á Álftanesi.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur I. Gunnarsson,
formaður.
gbjartur@simnet.is
Kópavogur
Í Gjábakka og Gullsmára er boðið upp á almenna leikfimi, jóga,
sundleikfimi, pútt, göngur, boccia, dans (námskeið), bobb og hægt
er að fara á þrekhjól.
Íþróttafélagið Glóð var stofnað
2005. Megin þema félagsins er hreyfing-fæðuval-heilsa.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg
Björgvinsdóttir fostöðumaður Gjábakka.