Akranes í samstarfi við
Skilamannahrepp, Innri-Akranesh.,Hvalfjarðarh., Leirárh.og
Melahrepp.
Heilsuefling á vegum Fjölskyldusviðs í samvinnu við ÍA,
FEBAN og heilsugæslu er í 6 vikur á haustin, námskeið í
stafgöngu er á vorin, einnig er boðið upp á leiðsögn í tækja- og
þreksal. Félag eldri borgara á Akranesi, FEBAN sér um sundleikfimi,
boccia, keilu og pútt. Liðleikaæfingar eru í íþróttahúsinu á
Jaðarsbökkum þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-11. 67 ára og
eldri fá frítt í sund en greiða kr.100 fyrir komu í tækjasal.
Samningur er í gildi milli Akraneskaupsstaðar og Hvalfjarðarsveitar
um að íbúar Hvalfjarðarsveitar 67 ára og eldri getir sótt
félagsstarfið.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Gísladóttir
öldrunarfulltrúi sigrun@akranes.is, 433-1000 og hjá FEBAN, Félag eldri borgara á
Akranesi og nágrenni, Kirkjubraut 40 s: 431 2000.
Borgarbyggð og
Borgarfjarðarsveit
Á dvalarheimilinu er leikfimi og boðið er upp á sundleikfimi.
Aðgangur að sundlaug og íþróttahúsi er ókeypis fyrir 67 ára og
eldri.
Starfrækt eru tvö félög eldriborgara, í Borganesi og nágrenni og
hitt í uppsveitum.
Nánari upplýsingar veitir Hjördís Heiðrún Hjartardóttir
félagsmálastjóri, hjordis@borgarbyggd.is
Snæfellsbær
Boðið er upp á leikfimi og jóga á Dvalarheimilinu Jaðri, tvo daga í
viku.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir bæjarritari, lilja@snb.is
Stykkishólmur
Hjartahópurinn hittist reglulega í sundi undir stjórn kennara á
þriðjudögum kl. 17 og boðið er uppá Boccia í íþróttahúsinu kl.
10-12 á föstudögum. Eldri
borgarar borga lægra gjald í laugina.
Nánari upplýsingar veitir Þór Örn Jónsson bæjarritari,
438-1700, thor@stykkisholmur.is
Reykhólahreppur
Líkamsþjálfun er á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð. Þar er
hægt að fara á þrekhjól.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjori@reykholar.is