Flýtileiðir
Nefnd um íþróttir 60+
Árið 2005 var stofnuð nefnd hjá ÍSÍ
um íþróttir aldraðra . Markmið ÍSÍ með stofnun nefndarinnar er að
efla íþróttastarf eldri borgara, vinna að fræðslumálum og standa
fyrir átaksverkefnum eftir atvikum.
Eitt af fyrstu verkefnum nefndarinnar var að safna saman
upplýsingum hjá bæjar- og sveitarfélögum um þá aðila sem eru að
sinna málefnum eldri borgara í tengslum við hreyfingu.
Niðurstöðurnar má sjá hér á heimasíðu ÍSÍ undir hnappnum
“Líkamsrækt”.
Í nefnd um íþróttir 60+ hjá
ÍSÍ eru:
Hermann Sigtryggsson formaður, fyrrv. íþróttafulltrúi á
Akureyri og framkvæmdarstjórnarmaður ÍSÍ.
Ástbjörg Gunnarsdóttir fyrrv. íþróttakennari og fyrrv. formaður
Trimmnefndar ÍSÍ.
Magnús Oddsson fyrrv. framkvæmdarstjóri og fyrrv. varaforseti
ÍSÍ.