Margar rannsóknir hafa sannað að
hreyfing bætir líkamlega og andlega líðan. Fólk sem hreyfir sig
regluleg dregur ekki aðeins úr líkunum á ýmsum langvinnum
sjúkdómum, s.s. hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini, sykursýki,
stoðkerfisvanda og offitu heldur stórauka þeir líkurnar á að lifa
lengur sjálfstæðu, heilbrigðara og hamingjuríkara lífi.
Því miður bendir allt til þess að kyrrseta hafi aukist þar sem um
56% fullorðinna og 24% barna eru of þung hér á landi. Þar af glíma
um 16% fullorðina og 5% barna við offitu.
|
|
Viðhorfsrannsókn sem ber heitið
Vitund og viðhorf til ÍSÍ, var lögð fyrir í október –
nóvember 2007.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar staðreyndir:
• Um 78,7 % voru jákvæðir gagnvart ÍSÍ.
• 45,8% stunduðu íþróttir með skipulögðum hætti
hjá íþróttafélagi eða ungmennafélagi á yngri árum. Af því
voru um 56% karlar. Af þessum 45,8% stunda 11,3% enn íþróttir
• 66,2% stunduðu boltaíþróttir.
• Um 47,2% hætta ástundun íþrótta um 16-20 ára
aldur. Fólk hættir seinna út á landsbyggðinni eða um 23 ára aldur á
meðan það er um 20 ára í Reykjavík.
• 59,2% stunda íþróttir í dag.
• 42,1% stunda íþróttir 3 – 6 x í viku.
• 50,6% stunda göngu eða stafgöngu.
• 36,4% stunda íþróttir í skipulögðu
starfi.
• 26,1% nefndu leti sem ein af ástæðum þess að
stunda ekki íþróttir/heilsurækt í dag
Hefur hreyfing á yngri árum
áhrif á hvað fólk hreyfir sig mikið síðar á ævinni?
Dr. Þórarinn Sveinsson, dósent og Svandís
Sigurðardóttir, lektor Sjúkraþjálfunarskor, læknadeild, Háskóla
Íslands.(2000). Íþróttamál, 24.árg.2.tbl
“Margt hefur áhrif á það hvort og hversu mikið fólk hreyfir
sig. Eitt af því sem oft er talið skipta máli er hverju fólk hefur
vanist í æsku og á unglingsárum”. “Okkar rannsókn sýnir ekki að
almenn hreyfing á unglingsárum eins og fólk metur hana eftir á hafi
forspárgildi um hreyfingu síðar á ævinni. Nokkrar erlendar
rannsóknir hafa þó sýnt að þátttaka í keppnisíþróttum í æsku og á
unglingsárum auki líkur á að fólk hreyfi sig reglulega þegar það er
orðið fullorðið. Einnig hefur nýleg kanadísk rannsókn sýnt að
íþróttakennsla 5 sinnum í viku jók líkur á reglulegri hreyfingu hjá
konum síðar á ævinni en þessu var ekki farið þannig hjá
körlum”.
|