Lífshlaupið

Einstaklingskeppni Lífshlaupsins er í fullum gangi, og geta einstaklingar unnið sér inn brons-, silfur-, gull- og platínumerki Lífshlaupsins. Lífshlaupsárið sem er í gangi núna hófst 1. febrúar 2012 og stendur til 31. janúar 2013.

 

Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna . Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Reglur keppninnar eru í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Inn á vef Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is er hægt að velja um þrjár leiðir .

 

Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni.

Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarleik fyrir grunnskóla. Síðan er það einstaklingskeppni sem allir geta tekið þátt í þar sem þátttakendur geta skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið. Einnig gefst einstaklingum sem nota Lífshlaupssíðuna kostur á að halda persónulega dagbók um matar- og svefnvenjur o. fl. undir síðunni "Síðan mín". 

Inn á vef Lífshlaupsins er að finna upplýsingar um fyrirkomulag og reglur keppninar ásamt öðrum fróðleik.