Hvatningarleikur grunnskólanna og vinnustaðakeppni Lífshlaupsins voru ræst í þriðja skiptið miðvikudaginn 3. febrúar 2010 og stóðu til þriðjudagsins 23. febrúar 2010. Metþátttaka var í áttakinu en alls tóku 13337 þátt og er það 44 % aukning frá 2009. 9056 tóku þátt í vinnustaðakeppninni, 3598 í hvatningarleik grunnskólanna og 683 eru að skrá reglulega inn hreyfinguna sína í einstaklingskeppninni.1202 lið frá 394 fyrirtækjum tóku þátt í vinnustðaakeppninni og 263 bekkir frá 39 skólum tóku þátt í hvatningarleiknum.
Við minnum á að einstaklingskeppnin er ennþá í fullum gangi þar
sem þátttakendum gefst kostur á að vinna sér inn brons-, silfur-,
gull- og platínumerki Lífshlaupsins. Nánari upplýsingar má finna
inná vef Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is