Flýtileiðir
Lífshlaupið 2011
Hvatningarleikur grunnskólanna og vinnustaðakeppni Lífshlaupsins voru ræst í fjórða skiptið miðvikudaginn 2. febrúar 2011 og stóðu til þriðjudagsins 22. febrúar 2011. Metþátttaka var í áttakinu en alls tóku 16.499 þátt og er það 23 % aukning frá 2010. 10.910 tóku þátt í vinnustaðakeppninni, 4.705 í hvatningarleik grunnskólanna og 834 eru að skrá reglulega inn hreyfinguna sína í einstaklingskeppninni.1432 lið frá 432 vinnustöðum tóku þátt í vinnustaðakeppninni og 340 bekkir frá 40 skólum tóku þátt í hvatningarleiknum.
Við minnum á að einstaklingskeppnin er ennþá í fullum gangi þar sem þátttakendum gefst kostur á að vinna sér inn brons-, silfur-, gull- og platínumerki Lífshlaupsins. Nánari upplýsingar má finna inná vef Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is