Ísland á Iði

- Baráttan við sófann -

Af hverju verkefnið Ísland á iði?

Rannsóknir hafa rökstutt mikilvægi hreyfingar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði.
Íslendingar eru að fitna og offita og hreyfingarleysi er vaxandi vandamál hjá þjóðinni.
 
Hvert er markmið Ísland á iði?
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vill vinna á móti þessari þróun með því að koma enn öflugar að heilbrigðismálum þjóðarinnar og hvetja landsmenn á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar.
 
Leiðin að markmiðinu – Hvað verður gert?
Verkefnið Ísland á iði er fræðslu- og hvatningarverkefni á landsvísu ætlað almenningi á öllum aldri.
Til að ná öflugum slagkrafti í hvatninguna er samstarfs leitað innan sem utan hreyfingarinnar.
 
Dæmi um samstarfsaðila:
-      Heilbrigðisráðuneytið.
-      Alþjóða Ólympíunefndin - IOC.
-      Sambandsaðilar ÍSÍ: sérsambönd, héraðssambönd, íþróttabandalög og íþrótta- og ungmennfélög.
-      Ýmsir fagaðilar s.s. Manneldisráð, Hjartavernd, Geðrækt, Beinvernd, NLFÍ, Félag íslenskra sjúkraþjálfara og Landlæknisembættið.
-      Sveitarfélög, stéttarfélög og fyrirtæki.
-      Fjölmiðlar.
 

Umsjónaraðili Ísland á iði:
Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ
jona@isi.is, s:514-4000 / 694-3571