Gefðu bílnum
frí!
Vegna
tæknivæðingar og þjóðfélagsbreytinga síðustu áratuga er hreyfing
ekki lengur jafn ómeðvitaður hluti af daglegu lífi margra eins og
var. Hreyfing eitthvað sem fólk þarf að vera sérstaklega
meðvitað um og þar með gera ráð fyrir í dagsskipulaginu.
Það þarf að taka ákvörðun um að hreyfa sig og það sem reynist oft
erfiðara, að framfylgja ákvörðuninni.
Hvað er næg
hreyfing?
Í stuttu máli benda rannsóknir til að öll skynsamleg hreyfing sé
betri en engin hreyfing.
Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin (WHO):
„Þú hefur gott af allri hreyfingu, hversu lítil sem hún er.
Lámarkshreyfing til að koma í veg fyrir sjúkdóma er 30 mín hófleg
hreyfing á dag”.
Lýðheilsustöð hefur gefið
út almennar hreyfiráðleggingar.
Þar segir:
• Fullorðnir hreyfi sig með miðlungsákefð eða mikilli ákefð í
minnst 30 mínútur daglega.
• Börn og unglingar hreyfi sig með miðlungsákefð eða mikilli
ákefð í minnst 60 mínútu daglega.
Miðlungsákefð er t.d. rösk ganga, garðvinna,
heimilisþrif, sund og hjólreiðar, leikfimi.
Mikil ákefð er t.d. fjallganga, skokk, hlaup,
flestar íþróttir stundaðar með árangur í huga.
Settu heilsuna í forgang.
Veldu hreyfingu í stað hreyfingaleysis í daglegu
lífi:
* Vertu ávallt vakandi fyrir því að
velja hreyfingu fram yfir hreyfingarleysi.
* Takmarkaðu bílanotkun eins og mögulegt er t.d. með því að ganga
eða hjóla í staðinn.
* Ef þú notar strætó, farðu út t.d. 2 stoppistöðum fyrr eða síðar
en þú ætlaðir.
* Ef þú ert á bíl, leggðu honum góðan spöl í burtu frá áfangastað
og njóttu þess að ganga það sem eftir er á áfangastað.
* Notaðu stigann í stað lyftu eða rúllustiga.
* Varaðu þig á sófanum. Þeir sem hreyfa sig reglulega hvílast
betur og eru orkumeiri en þeir sem henda sér beint upp í sófa.
Líkamleg þreyta hjálpar til við að losa um andlega þreytu eftir
amstur dagsins.
* Ef þú átt börn, mundu að þú ert afar mikilvæg fyrirmynd sem
hefur mikil áhrif á hversu mikið þau hreyfa sig.
* Takmarkaðu frítíma sem varið er í kyrrsetu s.s. við tölvu- og
sjónvarpsskjá (bæði hjá þér og börnunum) og stundaðu reglulega
hreyfingu s.s. göngu, skíði eða hjólreiðar. Það er ekki verra ef þú
nærð að fá aðra fjölskyldumeðlimi með, tilvalið tækifæri til að
eiga gæðastund með fjölskyldunni.