Stefna ÍSÍ í umhverfismálum

ÍSÍ skal í samvinnu við sambandsaðila sína, vinna að því að gera starf íþróttahreyfingarinnar eins umhverfisvænt og kostur er. Íþróttastarf þarf að fara fram í sátt við náttúruna og hafa jákvæð áhrif á nánasta umhverfi.

Markmið:

  1. Að vinna að markmiðum Ólympíuhreyfingarinnar í umhverfismálum.
  2. Að starf íþróttafélaga sé í sátt við umhverfið.
  3. Að auka þekkingu innan íþróttahreyfingarinnar á sviði umhverfismála er varða íþróttastarfið.
  4. Að stuðla að aukinni útiveru í íþróttalegum tilgangi og vitund fyrir náttúru landsins.

 

Leiðir:

  • Útgáfa fræðsluefnis um umhverfismál er varða íþróttastarf.
  • Safna upplýsingum um umhverfismál á sviði íþrótta.
  • Annast samstarf við stjórnvöld og félög er starfa að skyldum málefnum.
  • Veita ráðgjöf og aðstoða sambandsaðila við framkvæmd verkefna á sviði umhverfismála.